Inspired by Iceland

Lesa

22.3.2011

Ísafold Travel

Við sem störfum sem leiðsögumenn hjá Ísafold erum mörg hver orðin tiltölulega sjóuð í ferðum um Breiðafjörðinn.  En samt er það þannig að kapteini Pétri & Co tekst alltaf að koma manni á óvart með einhverri nýbreytni.  Eða bara með því að vinna úr ferðinni í hvert skipti eins og aðstæður leyfa, á sinn eðlilega og afslappaða hátt.  Þetta er líka algjör undraheimur sem komið er í þarna rétt fyrir utan hafnarkjaftinn í Hólminum, það vantar ekki.
 
Ég naut þess alla vega í botn að láta koma mér á óvart þennan laugardagseftirmiðdag, enn og aftur. Takk fyrir Sæferðir!
 
Jón Baldur.

-