Sæferðir í Stykkishólmi hafa yfir 20 ára reynslu í skemmtisiglingum á Breiðafirði. Fyrirtækið var stofnað árið 1986 og hefur vaxið ört síðan og er í dag eitt af stærstu afþreyingarfyrirtækjum á landsbyggðinni. Fyrirtækið á og rekur tvo báta þar sem öll tæki uppfylla ströngustu öryggiskröfur.
Sæferðir bjóða upp á fjölbreyttar siglingar, m.a. Ævintýrasiglingu, ferjuna Baldur sem siglir yfir Breiðafjörðinn með viðkomu í Flatey, veisluferðir og ýmsar sérferðir fyrir hópa.
Það er úr nógu að velja!
Komdu og njóttu stórkostlegs umhverfis Breiðafjarðar með okkur!
Starfsfólk Sæferða
___________________
skrifstofa Sæferða er opin alla virka daga frá 09:00 – 16:00
Lokað er á laugardögum og opið er á milli 14:00-15:00 á sunnudögum.
Símavakt Sæferða er alla virka daga frá 09:00-18:00
Á laugardögum er símavakt frá 13:00-16:00 og á sunnudögum frá 10:00-18:00.